Nýtt og Glæsilegt Stúdíó
HLJÓÐVERK er nýtt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í upptökum og eftirvinnslu á tónlist, hljóðvinnslu fyrir kvikmyndir, auglýsingagerð, talsetningu á teiknimyndum og leiknu efni. 
 
Fyrirtækið státar af fyrsta flokks hljóðveri með upptökuborði og tækjabúnaði eins og best gerist á heimsvísu. Einnig býr fyrirtækið yfir einu glæsilegasta hljóðnemasafni landsins. Hljóðverið samanstendur af rúmgóðum upptökusal með góðri lofthæð og frábærum hljómburði, sérhönnuðu hljóðblöndunarrými, söngklefa og masteringarsvítu.
 
Eigendur og starfsmenn Hljóðverks eru allir menntaðir og útskrifaðir hljóðmenn með mikla reynslu í tónlistarbransanum. Hljóðverk býður viðskiptavinum sínum fagmannleg vinnubrögð og góða þjónustu á öllum sviðum fyrirtækisins á frábærum kjörum.

 

https://www.facebook.com/Hljodverk

http://hljodverk.is

HLJÓÐVERK | Tunguhálsi 17 | 110 Reykjavík | Tel: +354 571 3131