Húsnæðið er uppi á Höfða. Þetta er rúmgott iðnaðarhúsnæði. Það fer vel um böndin 3 sem deila með sér plássinu og allir hafa sitt setup í friði. Dúndurgott sánd þarna. Ætli þetta séu ekki um 70 fm. Salerni. 

Securitas er á svæðinu. 'Sambúðin' hefur gengið afar vel þarna og við ætlum að halda því þannig áfram og við gerum eðlilega þær kröfur að vel sé gengið um og að greiðslur klikki alls ekki. Fyrirkomulagið hefur verið þannig að hvert band er með 2 kvöld föst í viku og svo eru allir dagar lausir og við nýtum það bara eftir aðstæðum og þörfum.

Leigugjaldið er 28 þús á mánuði. Hiti og rafmagn innifalið. 

Plássið losnar nú um áramótin.