Ég veit að nokkrir einstaklingar hér hafa verið að leika sér að smíða sína eigin effecta og hljóðfæri. Því datt mér í hug að starta smá umræðu um hvað fólk hefur verið að smíða og breyta, eins gætu einstaklingar sem eru spenntir að byrja á svona smíðum spurt einstaklinga sem hafa þegar smíðað hlutina til að fá ráð.

Allavega þá tel ég það sniðugt að fólk byrji á að setja inn hvað það hefur smíðað og hvað það hefur gert, mögulega segi það hvað er uppáhalds, erfiðasta, leiðinlegasta, asnalegasta og/eða misheppnaðasta verkefnið sem það hefur farið útí.

S.s. bara almennur þráður um hvað fólk hefur DIY-að. :o)

Ég bæti við lista yfir það sem ég hef gert þegar ég hef fengið einhver svör við þessum þræði. ;o)

Bætt við 8. júlí 2009 - 15:14
Ef fólk á myndir þá væri það náttúrulega svakalega gaman líka (annaðhvort að senda inná áhugamálið eða linka í þær hérna).