Getur einhver bent mér á nokkuð þægilegann (má alveg vera rack græja) Midi sampler.

Ég veit ekki hvort að þær kröfur sem ég geri eru of miklar en ég geri bara kröfur um að ég geti uploadað, á nokkuð þægilegann hátt, þeim midi fælum sem ég bý til í tölvunni og samplerinn þarf að spila CC11 og program change skipanir.

Nei ég ætla ekki að kaupa einhvern sem þið eigið þar sem ég ætla að kaupa þessa græju í sumar þegar ég á pening. :-)

Ég veit það eru nokkrir hérna sem vita pottþétt um réttu græjuna fyrir mig sem geta beint mér á rétta leið í leitinni. :-)

Takk kærlega.