Þegar ég var yngri og var í tónfræði, þá átti ég alltaf erfitt með að skilja tónbil en hér ætla ég að skrifa niður það sem ég hef lært um tónbilinn eftir öll mín ár í baráttunni um að skilja þetta.

Tónbil er bilið milli tveggja nótna í tónlist. Bilið er mælt í nótnabókstöfum en þar sem stundum er heiltónsbil milli bókstafa og stundum hálftóns þá þarf að nota litil, stór, hrein, minnkuð og stækkuð tónbil til að tákna alla fræðilega möguleika á tónbilum.


Útskýring
“Stærð tónbilsinns er einfaldlega fundið út með því að telja bilið milli nótnanna (með tilliti til að H sé milli A og C í stað b og að eftir G komi A aftur). Bilið milli A og C er til að mynda þríund því AHC eru þrír bókstafir, að sama skapi er bilið milli F og A þríund því FGA eru þrír bókstafir en samt er ein fleiri nóta milli F og A heldur en A og C. Það gerir að verkum að A-C er lítil þríund og F-A er stór þríund. Einnig ef við værum með lækkaða nótu í A-C sumsé A-Ces þá væri ennþá um að ræða þríund en hún væri minni en littla þríundin og því minnkuð þríund að sama skapi ef A væri hækkaði í F-A sumsé F-Aís þá væri um að ræða stækkaða þríund.”
(tókk þetta úr kennslubók)

tónbil sem eru af þeirri stærð að þau ná alltaf jafn mörgum nótum á milli sín sama hvar þau eru spiluð kallast hrein. Því eru þau aldrei stór né lítil og þar af leiðandi hrein. Hrein tónbil geta þó verið stækkuð og minnkuð.

Stækkaða ferundin/minnkaða fimmundin
Vegna eðli hreinna fimmunda og hreinna ferunda myndast gat á milli þeirra, þar sem engin “nátúrulegt” (stórt, lítið, hreint) tónbil er. Þetta gerir það að verkum að eina leiðin til að spila 6 hálftónsbil eða hálfa áttunder með stækkaðri ferund eða minnkaðri fimmund.

Stærðfræðileg skýring
Þegar talað er um tónbil er verið að tala um hlutfall milli nótna og því tvöfalda áttundir hlutfallið en hafa engin bein áhrif. Ein áttund er 2:1, það er efri nótan er með helmingi hraðari sveiflutíðni en nótan fyrir neðan. Því getum við séð að áttund gefur okkur ekkert brot og ekkert hlutfall til að vinna með. Ef við erum með stóra þríund þá er hlutfall hærri nótunnar 5:4 miða við þá lægri. Þetta gerir það að verkum að stór ellefund (áttund + þríund) sem er með hlutfallið 10:4 má þátta í áttund og þríund eða 2:1 * 5:4 sem sýnir að sama brot stendur eftir og hjá þríund.
(tekið úr kennslubók)

J.T

Heimildir
Ég og kennslubók í tónfræði