Halló.

Undanfarna daga hef ég átt í miklum vandræðum með að ná sambandi við alla erlenda leikjaþjóna (servers) fyrir bæði Day of Defeat: Source og Counter-Strike: Source. Ég varð fyrst var við þetta fyrir rúmum tveim vikum. Ég hef ekki gert neinar athuganir á hvort að það sama á við um eldri útgáfur þessara leikja eða annara sem bygðir eru á Half-Life leikjunum. Allar upplýsingar um það eru kærkomnar.

Þetta vamdamál lýsir sér þannig að annað hvort næ ég alls ekki sambandi eða þá að það er mjög, mjög slitrótt. Pingið sjáft virðist vera eðlilegt en það er alveg óhemju mikið “Loss” og “Choke”. Í console kemur svo mislangur listi af “Recived fragment out of order” tilkynningunni ásamt einhverjum tölustöfum. Ég hef spilað Half-Life og mod fyrir hann síðan hann kom fyrst út og ég man bara ekki eftir að hafa séð annað eins. Aldrei.

Eftir að hafa gengið úr skugga um að ekki sé að ræða neina hugbúnaðar- eða vélbúnaðavillu hjá mér þá bendir allt til að tengingin sjálf sé vandamálið. Ég er búinn að gera tilraun sem felst í því að ath. tenginguna við marga þjóna í hinum ýmsu löndum á meginlandi evrópu og á bretlandseyjum og svo virðist sem sambandi mínu sé ávalt beint í gegnum Þýskaland (DE - Deutsche Telekom AG, Internet Service Provider) sama hvert ég er að reyna að ná sambandi og að þar sé vandinn. Ég er búinn að hringja oft í þjónustuver símans, en þar er ég með mína netþjónustu, og er búinn að þá svör sem eru allt frá því að vera dónalegur útúrsnúningur yfir í viðurkenningu á að þar viti menn ekki hvað veldur. Einnig hef ég sent þeim fyrirspurn í formi tölvupósts sem hefur ekki verið svarað.

Nú verð ég að viðurkenna að þekking mín á netsambandi íslands við umheiminn er frekar takmörkuð. En ég hélt þó að hún færi núorðið í gegnum FAIRCE sæstrenginn sem liggur til skotlands, hví virðist ég þá alltaf tengjast í gegnum þýskaland? Ég veit ekki hvort að það tengist málinu á einhvern hátt að þar fer nú fram mikil tuðrusparks keppni með tilheyrandi álagi á öll netsamskipti.

En ástæða þess að ég er að skrifa þessa grein er sú að ég hef komist að raun um að ég virðist ekki vera sá eini sem á við þetta vandamál að etja. Ef að ÞÚ er líka í þessum vandræðum gætirðu þá nokkuð gert mér þann greiða að svara mér og segja í stuttu máli hvernig það lýsir sér? Ég er að vonast eftir því að þannig geti ég fengið betri hugmynd um hve stórt þetta vandamál er.

Takk fyrir.