Gamer óskar öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir árið sem var að líða.

Við byrjum árið með þeim fréttum að skráning er hafin fyrir næsta mót okkar sem er haldið 5. - 7. febrúar.

Skráning er opin fyrir 300 manns,
- 36 Counter - strike 1.6 lið
- 12 Counter - strike Source lið
- 8 Call Of Duty 4 lið
- 8 Starcraft Lið

Eins og sést á þessum fjölda þá er það full ljóst að það munu ekki allir komast að svo það er um að gera að vera fljótur að skrá sig.

Mótið verður haldið í Mest-húsinu að Norðlingabraut 12.

Athuga að greiðslu fyrirkomulag hefur verið breytt fyrir mótið.
Hægt er að greiða fyrirfram inn á reikning og mun þá mótsgjaldið vera lægra fyrir þá sem taka þá leið.
Einnig er hægt að panta internet fyrirfram líka og þá er það uppsett og tilbúið þegar mætt er á svæðið.

Mótsgjald :
Fyrirfram : 3.500kr.
Við mætingu : 4.000kr.

Internet gjald :
Aðgangur að steam : 0kr.
Aðgangur að interneti og greiða fyrirfram : 500kr.
Aðgangur að interneti og greiða við mætingu : 1.000kr.

Skráning hefst 2.janúar og endar 30.janúar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu okkar www.Gamer.is