Eins og þið sjáið kannski þá er kominn kubbur hérna fyrir triviu.

Þessi hugmynd kom upp fyrir löngu síðan, réttara sagt þann 7. febrúar 2007 klukkan 23:27, frá Kylju.

Núna höfum við áhveðið að láta verða fljótlega að þessu, líklega verður þetta í stíl við triviuna á Harry Potter áhugamálinu, þá 10 spurningar vikulega eða eitthvað svipað.

En hvernig líst ykkur á þetta? Einhverjar hugmyndir sem þið vilduð koma á framfæri?

EF vel til gengur er jafnvel möguleiki á að finna til einhver verðlaun af einhverri sort.

Ef notendum detta góðar spurningar í hug má svo alltaf senda þær í pm á okkur, mig eða Kylju sem lofaði að sjá að mestu um þetta =P
-