Næstkomandi laugardag 27. nóvember er væntanlegur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þríliti stóðhesturinn Litningur frá Möðrufelli sem mun dvelja í garðinum til áramóta. Litningur er fæddur Matthíasi Eiðssyni árið 2008 og er nú í eigu Hryllingsfélagsins sem telur 50 manns víða á landinu. Faðir Litnings er Hryllingur frá Vallanesi og móðir hans er Hrefna frá Ljótsstöðum.

Litningur vakti strax mikla athygli sem folald enda er hann í senn rauðskjóttur og brúnskjóttur en slíkt hefur ekki sést fyrr í íslenska hrossastofninum. Enn er beðið niðurstaðna rannsókna á Litningi og foreldrum hans um hvað veldur hinni sérkennilegu litasamsetningu. Annars vegar telja menn að tveir fósturvísar hafi runnið saman í einn en hins vegar að um stökkbreytingu sé að ræða. Sé um stökkbreytingu að ræða er líklegt að liturinn erfist áfram en von er á fyrstu folöldunum undan Litningi næsta vor.

Áhugasamir eru hvattir til að kíkja á Litning á aðventunni en opið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum alla daga frá klukkan 10 til 17.

http://hestafrettir.is/Frettir/9507/
mbk. Böðvar Guðmundsson