Hææ.. =)

Hvað er langt síðan þú dast af baki?

“Það er akkurat eitt ár síðan ég datt af baki.”

Ég gæti sagt þetta, ef ég hafði ekki dottið klunnalega af baki áðan.. Í dag er einmit eitt heilt ár síðan ég datt af baki?

Þvílík tilviljun. Að detta af baki sama dag.

Þannig er að ég datt af baki eftir hundrað metra frá hesthúsinu.. Merin sem ég var á brá eitthvað og þetta var svo óvænt að ég missi jafnvægið og skýst fyrir framan hestinn. Held enþá í taumin(passaði það vel að missa hann ekki).. Og ég ætlaði mér ekki að detta. Þannig ég held jafnvæginu og ég stend ennþá. Þannig séð, ég datt reyndar ekki.. Ég lennti á fótunum.. Kallar maður það að detta af baki? Ég veit það ekki xD


En ég fór að pæla í þessu hvort þetta hafi gerst á sama dag og í fyrra, og já, það reynist vera rétt.

.. Óhappadagurinn er 15.jan..

Hérna er gamli korkurinn minn um flugferðina frá því í fyrra..

http://www.hugi.is/hestar/threads.php?page=view&contentId=4484700

– Lilje

ps.. fannst þetta svo óvænt því þessi meri er alveg 100% traust.. er það enn.. en greinilega sá hún eitthvað voða ógnvænlegt =)
— Lilje