Ég er að fara upp í sveit í sumar og ég fékk þá hugmynd að búa til svona semi líkamsræktarstöð út í hlöðu. En mig vantar svona góðar hugmyndir fyrir eithverjar svona retro æfingar sem er hægt að gera með svona hversdags drasli sem hægt er að finna út í hlöðu og já það er allt í þessari hlöðu.

Ég er búinn að vera að pæla í þessu og mér datt auðvitað fyrst í hug Rocky og æfingarnar sem hann er að gera, lyfta vögnum, kýla í kjöt og eithvað þannig. Svo Never back down, taka stigann og henda múrsteinum og eithvað. Svo eithverjar klassískar æfingar eins og upphífingar og ég er með handlóð.

En annars þá eru allar hugmyndir velkomnar nei, allar hugmyndir fagnaðar!
Lífið er aðeins vegur sem leiðir til dauða.