Jæja þá ætla ég að reyna nú að koma þessu aftur smá á skrið þar sem ég er ekkert búinn að standa mig hérna síðkastið.

Það verður gefið stig fyrir top 3 sætin og fer það allt eftir þáttöku um hversu mörg stig verða gefin.


Þessi keppni hefur örfáar reglur, en þær eru:

1. Haldið öllu innan siðferðislegra marka.
2. Verkið sem þið sendið inn verður að vera ykkar verk. Verið tilbúin til að sanna það.
3. Myndin má ekki vera stærri en 1024x768 og Hugi gæti einnig átt bágt með myndina sé skráarstærðin stór.

Þið veljið hvaða forrit þið notið, frá MS Paint upp í Maya. Ykkar val.

Keppni lýkur þann 31.Desember

Sendið þetta inn sem mynd, og hafið “- Keppni” sem viðskeyti.

Gangi ykkur vel.

Kveðja, whiMp.