Golf Ernie Els gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrsta degi Opna breska meistaramótsins í golfi sem fer fram á Royal Troon. Els sló með fleygjárni á 8. braut sem er rétt um 112 metrar á lengd. Þetta er í sjöunda sinn sem Els fer holu í höggi á atvinnumannamóti.
——————-