Ef þú ert með GSM kort frá Símanum getur þú sótt WAP stillingarnar í Nokia eða Ericsson símann þinn með SMS skilaboðum. (Ef síminn þinn er með WAP það er að segja).

Ef þú átt t.d. Nokia 3510 sendir þú skilaboðin:

N3510 í númerið 8900900

Ef þú átt Ericsson t20e sendir þú skilaboðin:

T20e í númerið 8900900

Þessi skeyti sem eru nefnd hér að ofan senda “Staðal” stillingarnar, það er þær stillingar sem líklegast er að þú þurfir að nota.

N3510 sendir til dæmis uppsetningu fyrir GPRS áskriftina WAPpari sem er sjálfvirkt tengt við númerið þitt.

Ef þúvilt fá aðrar stillingar getur þú bætt einhverju af þessum endingum í skeytið:

VAF - Sendir stillingar fyrir GPRS VAFrara áskriftina
WAP - Sendir stillingar fyrir GPRS WAPpara áskriftina
DATA - Sendir stillingar fyrir GSM Data tengingu á 14.4 kb/sek hraða
UTL - Sendir stillingar sem eiga að tryggja öruggt samband í útlöndum.

Dæmi: T68i VAF sent í 8900900

2 efstu stillingarnar eru eingöngu í boði fyrir þá síma sem hafa GPRS.

Ef þú ert ekki viss hvað þú þarft, skaltu sleppa endingunni.

Listi yfir alla kóðana sem í boði eru er hér: http://www.simi.is/control/index?pid=17668