Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  GREINAR 
Höfundur:
mAlkAv
Dags:
27. janúar 2001 - 08:20
Fjöldi lestra:
418

Gefa álit

Prúðuleikararnir, ekki bara fyrir börn
Ég ætla aðallega að fjalla um Prúðuleikarana á tíma Jim Henson þó svo að margt af því sem þeir eru að gera núna mjög fínt.

Ég hef orðið dáltið var við það hjá þeim sem eru yngri en ég, og jafnvel á svipuðum aldri, að þeir halda að Prúðuleikararnir séu bara barnaefni, sú ályktun er mjög röng.

Jim Henson var snillingur, hann var bandarískur þó að Prúðuleikarnir hafi fyrst komið fram í bresku sjónvarpi, Henson hafði lengi þann draum að koma brúðum fyrir sjónir almennings sem skemmtun fyrir alla, hann bylti í raun öllu sem tengdist brúðum þegar hann áttaði sig á því að brúðurnar yrðu raunverulegri ef brotnar yrðu þær reglur sem voru þá algildar. Í staðinn fyrir að fela stjórnanda brúðanna bak við eitthvað þá lét hann myndavélarnar um að fela þá, frelsið sem kom út úr þessu er grundvallaratriði sem Prúðuleikararnir gerðu seinna meir. Hrólfur var fyrsta persónan sem ennþá er eitthvað notuð sem Henson skapaði, Kermit kom síðan fram í myndinni The Frog Prince 1972.

Sesame Street byrjaði 1969 og var beint að börnum sem kennsluefni, og það er frábært sem slíkt. Jim Henson var einn af þeim sem byrjuðu í þættinum Saturday Night Life en hann hætti samt fljótlega vega þess að hann var ekki á sömu bylgjulegnd og hinir.

Upp úr því að hætta í SNL sneri Henson sér að því að skapa nýjan þátt sem yrði með miklu þróaðri húmor en nokkuð sem tengdist brúðum hafði reynt. Enginn bandarískur framleiðandi þorði að hjálpa til og þess vegna fór Henson til Englands og þar komu Prúðuleikararnir fyrst fram fullskapaðir, annað árið sem þeir voru í loftinu slógu þeir endanlega í gegn og hafa síðan verið fastagestir í sjónvarpi um allan heim.

Jim Henson náði enn og aftur að snúa á gagnrýnendur sína þegar hann náði að búa til mynd í fullri lengd um Prúðuleikarana, The Muppet Movie (1979). Síðan þá hafa komið út þó nokkrar Prúðuleikaramyndir sem eru allar þess virði að skoða.

Á 9da áratugnum gerði Henson margt merkilegt, við könnumst helst við Búrabyggð, Prúðukrílin og síðan The Storyteller sem hefur alltaf reglulega verið sýnd á Stöð 2. Hann gerði líka myndirnar The Dark Crystal og The Labyrinth sem hafði David Bowie í aðalhlutverki. Hann stofnaði líka The Creature Shop sem hefur gert fyrir brúður sem ILM gerði fyrir tæknibrellur.

Síðan má ekki gleyma að Yoda er búin til af Jim Henson og félögum.

Jim Henson dó árið 1990, helgina sem hann ætlaði að selja Disney fyrirtækið sitt, ég held að núna eigi eitthvað þýskt fyrirtæki Jim Henson Productions.

Ég ákvað að skrifa þessa grein eftir að ég horfði á The Muppets Take Manhattan, það er eitt (reyndar eru mörg) atriði sem er algjör snilld: Kermit og Piggy eru að aka um Central Park í hestavagni og gömlu fram-í-kallara-kallarnir Statler og Waldorf skiptast á þessum orðum: "Look, the Frog and Pig" "Looks Like They're in Love" "Yeah, kindof makes you sick doesn't it?" og hlæja síðan hlátri sínum. Málið með þetta atriði er að ef þú kryfur það örlítið þá sérðu brandara sem er alls ekki ætlaður börnum.

Síðan er það að skoða Prúðuleikarana sjálfa, Kermit er eðlilegastur, hann er samt ástfanginn af svíni. Svínka er montin, hrokafull og frábær. Gunzo er stórkostlegur, undarlegur, átti upphaflega að vera gammur en er núna Whatever eða jafnvel geimvera, Gunzo er mitt uppáhald, samskipti hans við hænur eru óborganleg. Animal er bara geðveikur "woman! woman! woman!...WOMAN!!". Fossi er snillingur í að vera lélegur stand-up og allir hinir hafa sitt thing. Hljómsveitin er meira og minna útúrdópaðir hippar (fyrir utan Animal, trommuleikarann sem þyrfti líklega að vera dópaður).

Afsakið langa grein frá mér en ég þurfti bara að koma þessu frá mér.

------
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki</A>
Millenium Hand and Shrimp.
So Long, And Thanks for All the Fish

The Muppets er snilld!!!
það hafa komið rosalega skemmtilegar myndir um The Muppets þar á meðal: The Muppets in Space, The Muppets Take Manhattan og
The Muppets Tresure Island!!!

IndyJones

------
ruglubulli
Ég sá gamla þætti ekki alls fyrir löngu. Þessu sem voru í framleiðslu á áttunda áratuginum. Þegar ég var yngri var þetta mitt uppáhald. Svo sá ég þetta aftur eins og sagði og ég flissaði af þessu sem ég hló af áður, en lá í krampa yfir "brandörum fyrir eldrir" áhorfendur. Til dæmis eitt atriði var spurningakeppni, og ef það yrði svarað vitlaust yrði litla sæta kanínan étin. Og það var svarað vitlaust og kanínan hóf að flýja.. og skrímslið sem átti að éta hana hóf elta hana. Svo var þessi eltinga leikur allan þáttin. Kom önnur atrir sem voru síðan skyndilega rofin af því að kanína var að fela sig í sviðsmyndini og það var verið að leyta að henni. ALveg snildar djókur og þeir voru oft margir álíka.

------
:: how jedi are you? ::
mAlkAv fékk krampakast af hlátri við að rifja upp þennan brandara

------
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki</A>
Millenium Hand and Shrimp.
So Long, And Thanks for All the Fish
sakna muppets tonight ;(

------
"Humility is not thinking less of yourself,
But thinking of yourself less."
Já, ég er mikill Muppets aðdáandi, verst hvað það er lítið í gangi með þeim þessa dagana.. Muppets Tonight voru frábærir :) Pepe the prawn! :)

Annars hefur Gonzo alltaf verið í uppáhaldi hjá mér :)

------
-
http://www.xbox360.is | siggig@xbox.is
Prúðuleikararnir eru brillíant. Muppets in space er samt fyndnust að mínu mati.

En þegar þú minnist á Sesame Street þá frétti ég það að í sumum löndum eru þeir þættir bannaðir. Málið er það að Bert og Ernie sofa í sama herbergi, oh boy, þeir hljóta að vera hommar!!!

Það sem fólki dettur í hug.

Annars hef ég heyrt að ef þú ert að reyna að læra eitthvert tungumál er mjög góð aðferð að fá sér Sesame Street þætti á viðkomandi tungumáli. Þar kenna þeir þér litina, tölurnar, stafina og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta virkar víst mjög vel.

En lifi Prúðuleikararnir
Góð grein og hefði alls ekki mátt vera styttri.
Hún hefði átt að vera aðeins lengri, það var að rifjast upp fyrir mér að Hrólfur hefur ekki sagt orð síðan Jim Henson dó af því að hann var aðalkarakterinn hans.

------
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki</A>
Millenium Hand and Shrimp.
So Long, And Thanks for All the Fish
Þetta er bara snilld... ég sé svo eftir því að ég er ekki búinn að sjá meira af þeim... :/
Ég var að muna það í spurningakeppninni, þá átti skrímslið að fá að éta hvolp ef hann svaraði vitlaust en kallinn svaraði rétt og og skrímslið fór í fýlu og át hvolpinn samt :)
Ég dýrka Gunzo og Animal en ég hef aldrei fílað Kermit og Svínku. Síðan voru líka gömlu kallarnir tveir algerir snillingar.
Kermit er náttúrulega bara Straigt Man, sá eðlilegi, hverjum ættu Gunzo og félagar að gera grín af ef Piggy væri ekki þarna?

------
<A href="http://www.hugi.is/rokk/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=mAlkAvmAlkAv hinn myrki</A>
Millenium Hand and Shrimp.
So Long, And Thanks for All the Fish
Ég hef alltaf dást af Prúðuleikurunum og er ennþá mikill aðdáandi þeirra, það var frábært þegar þættirnir voru á mánudagskvöldunum.
Muppets eru stórkostlegir.
Muppets Christmas Carol og Tresure Island voru bestar.

------
Never In A Field Of A Human Coflict, Have So Many, Owed So Much, To So Few

- Winston Churchill
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar