Þeir taka þetta til sín sem eiga það


Hvað í andskotanum eruð þið að spá!

Þið ráðist að lögreglustöð og farið að væla þegar lögreglan úðar á ykkur piparúða.

Þið ráðist á saklaust fólk, fólk sem er að vinna á gamlársdag á hótel borg og hefur ekkert gert. Fólk sem er líka að borga af húsnæðisláninu, fólk sem finnur líka fyrir kreppunni og þið gangið fram í nafni lýðræðis og þið dirfist að krefjast réttlætis. Mér er skítsama þó þið kvartið að ráðamenn séu ekki að hlusta á ykkur, hver tekur mark á múgi sem ræðst á almenning.?
Þið eruð að smána alla mótmælendur á Íslandi með þessum “mótmælum” og skaða frekari FRIÐSAMLEG mótmæli því fólk vill alls EKKI láta bendla sig við YKKUR!

Fólk eins og þið eigið enga áheyrn skilið. Þið boðið enga nýja husgjón, nýtt kerfi eða lausnir. Þið standið fyrir ekkert annað en ykkar eigið hatur, reiði, pirring og heimsku.
Engar góðar breytingar geta sprottið upp úr reiði og hatri.

Þið eigið ekkert annað en táragas og piparúða skilið.