Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  GREINAR 
Höfundur:
DeathGuard
Dags:
24. mars 2007 - 02:17
Samþykkt af:
IanAnderson
Fjöldi lestra:
835

Gefa álit

Hræðsluáróður, síðasta ógnin!
Þeir ættla ekki að hætta að tekjutengja hluti, stunda “peningaþvott” hjá tryggingafélögunum, einkavæða fyrirtæki í eigu ríkissins og lækka afslætti á ýmsum formum. Skattlækkanirnar munu hverfa strax og sama ríkisstjórn heldur velli vegna verðbólgu. Þeir munu einkavæða ríkissjónvarpið. Halda áfram stóriðju og gera Ísland að mest mengandi landi í heimi sem mun gefa öðrum þjóðum afsökun til að menga meira og þannig mun þetta ekki hafa nein áhrif á gróðurhúsaráhrifin.Framvarðamenn ríkistjórnarinnar ráða engu, það eru aðrir á bakvið tjöldin sem gera það.

Hin nýja ríkistjórn mun vilja halda áfram að stjórna landinu eftir þessi 4 ár sem þeir hafa verið við völd, svo það er algerlega útilokað að þeir muni klúðra hlutunum. Framsóknarhræðslan mun vaka yfir þeim.

Nú eru sjálfstæðismenn að tala um að skipta kökunni, sem þeir munu að sjálfsögðu ekki gera, því kakan er svo girnileg að þeir munu háma hana allir í sig sjálfir, kanski við fáum botninn á kökunni sem festist við ílátið eins og vanalega. Reindar minkar þetta alltaf, því þeir eru farnir að reisa minni margrahæða kökur. Til þess að fá stærri sneiðar auðvitað.

Já landar mínir, ég held við séum komnir með nóg af þessari ríkistjórn, kanski við verðum ekki jafn rík(kanski ríkari) peningalega (þá meina ég það bara til ríka fólksins), en glæpum mun fækka, samfélagið verður samstilltara og öll dyrin í skóginum verða vinir!Nei bara djók, en betri vinir sammt, allavegana þeir sem eru vinahæfir.

Sjálfstæðismenn eru að gera landan svo áfjáðan í peninga að aðeins þeir skipti máli. Auðvitað skipta þeir mestu máli þegar upp er staðið... En þegar maður á nóg af þeim þá skipta þeir bara engu heldur verða þeir baggi á manni eins og manni sem er spilasjúkur eða alkólisti, já þið eigið við vandamál að stríða og það þarf að fara að stofna meðferðarheimili fyrir peningafíkla. Fullt af fólki er að tapa sálinni. Þið hafið kanski ekki áttað ykkur á því hvers vegna meiri peningur eru ekki að veita ykkur meiri hamingju en þetta er ástæðan, þið hafið meira en nóg. Þar að auki ef þið hafið alla peningana hver á þá að kaupa af ykkur vörurnar???

Auðvitað er ábyrðarhlutverk að stjórna fyrirtækjum og í raun þegar maður á fyrirtæki, þá ertu í raun bara að sinna ábyrðarmiklu hlutverki og í raun áttu ekki beint þann pening sem er í fyrirtækinu, heldur þær tekjur sem myndast af rekstrinum. Þessi fjármála heimur er mjög flókin og hættulegur. Það sem ég hef áhyggjur af er að í framtíðinni þyrfti ekki nema ein kjarnorkusprengja að springa á viðkvæmum stað til að nánast rústa öllum markaðnum. Þegar það gerist eða eitthvað annað þaðan af verra, þá kemur 3 heimstyrjöldin eða eitthvað í þeim dúr (það er óþægilega langt liðið frá síðustu). Þetta er ástæðan fyrir því að Íslendingar eigi að leita sér allra leiða að gera sig sem mest sjálfbæra. Þó ég sé alls ekki samþykur því að Íslendingar stofni her, þá er ég sammt á þeirri personulegri skoðun að við þurfum að eiga einhver vopn til að grípa til þegar þar að kemur og mín tillaga er sú að vopnabúr sé nauðsinlegt.

Nú eru næstum allir samála um að jörðin er að hlýna og það hratt. Eftir 20-30 ár gæti verið mögulegt að fara í sólbað núna í þessum mánuði og jafnvel langt fram í nóvember, sumarið stefnir í að vara yfir í 6 mánuði. Þetta mun auka ferðamannastraum hingað verulega og gera ferðamannaiðnaðinn að stærstu tekjulind okkar. Gerum okkur klára og losum okkur við álverið í Straumsvík, það gæti ekki verið á verri stað...

Nú bið ég ykkur bæði illa uppalna óþroskaða sjálfshyggjufólkið og þið sem skynsamari eruð að láta ekki alla skynsemi fjúka út um gluggan. Þessi ríkistjórn er orðin ískyggilega hrokafull og mætti halda að allt gáfasta fólkið færi í pólitíkina, en svo er svo sannarlega ekki, þó auðvitað sé fullt af snjöllu fólki þar innanum. EKKI! KJÓSA! SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN! VEGNA! HRÆÐSLUÁRÓÐURS!

Það kom mér á óvart núna um daginn þegar forsetisráðherran Geir Snobbaði H Harde, annars góði maður, bauð litlum krökkum í heimsókn til sín á vinnustaðinn. Ég hugsaði með mér hvernig stæði nú á þessu? Ég fékk svarið að endingu. Krakkarnir voru frá Garðabæ, með fullri virðingu fyrir þeim. Hvort sem þetta var viljandi eða óviljandi, þá er þetta ekki boðlegt.

Ríkistjórnin er að missa öll völd, vegna einkavæðingarinnar... Þeir geta ekkert gert nema hóta ríkisvæðingu (sem ég er ekki að fara að sjá gerast) til að sporna við gengdarlausri græðgi í “hver á mestan pening” keppninni, sem er að missa öll takmörk og eyðileggja smám saman það sem þeir ættluðu að standa fyrir. 12 ára ríkistjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknaflokks er senn á enda. Ef ríkistjórnin fellur mun forsetinn gefa vinstri grænum grænt ljós (“grænt” ljós) á að mynda nýja ríkistjórn vegna þess að þeir stefna í að þrefalda fylgi sitt eða að minsta kosti tvöfalda það, sem mun gera þá að sigurvegurum kostninganna.

Er þetta ekki spennandi... Bráðum getum við farið að monta okkur yfir því að eiga stærsta álver í Evrópu. Kanski þetta endi með því stærsta í heiminum. Laðar að ferðamennina??? Ekki satt?

Maður sem hugsar skammt, dettur aftur fyrir sig . Maður sem hugsar langt, hrasar framm fyrir sig. Gerum bæði og stöndum í lappirnar. Velferð og framtíð! Stöndum saman sem ein þjóð geggn heiminum og við og heimurinn munum græða og ekki bara í peningum. Þurkið dollaramerkin úr augunum.

DeathGuard

Fólk sem þekkir ekki fátækt talar um pening sem ómerkilegan hlut, peningur kemur mat á borðið hjá þér, peningur borgar spítala og skóla. Peningur borgar það að ruslið er týnt uppp af götunum. Peningur borgar hugi.is. Peningur borga dagblöðin.

Ef við útrýmum pening í svona miklu magni eins og VG virðast vilja gera, hvað eigum við að gera? Gott að hafa crappy velferðarkerfi og allir eru drullusvangir því það á enginn pening fyrir mat. Við erum allaveganna umhverfisvæn!

------
IngvarL - Stjórnandi á Tilverunni og Fjármál og Viðskipti

Ingvar says: þú ert 30 min að grafa heila holu, hvað ertu lengi að grafa hálfa holu?
Brynjar says: Heilengi, pólverjarnir eru farnir.
Ég get ekki allveg séð, hvernig þú færð þetta út. Er hræðsluáróður það eina sem þið getið komið með. Hvernig væri að útskýra vel hvers vegna allt fer til kaldra kola?
Sammála þér að mörgu leyti.

Hins vegar gerir þú málstað þínum engan greiða með þessari grein, því hún er svo reiðilega skrifuð.

------
Lesið bloggið:
blogg.visir.is/snaebjorn
Búinn að rökræða við fólk nóg um Straumsvík, en:


Tilvitnun:
Þó ég sé alls ekki samþykur því að Íslendingar stofni her, þá er ég sammt á þeirri personulegri skoðun að við þurfum að eiga einhver vopn til að grípa til þegar þar að kemur og mín tillaga er sú að vopnabúr sé nauðsinlegt.


Og ef við höfum ekki her, hver á þá að nota þessi vopnabúr? Löggan? Ef það verður ráðist á Ísland mun ekki vopnabúr né 1000 manna her stoppa eitt né neitt.

------
Betra seint en aldrei
hann er ekki að meina her heldur varnarlið, ég myndi alveg sækja um vinnu þar :)
fleiri skip í landgæsluna, nokkrar þotur og þyrlur.
hvað eigum við að gera núna þegar góða góða BNA, vill ekki lengur vernda okkur.
Íslendingar eiga tvö skip og tvær þyrlur, HALLÓ!!! kommon sens, meiri segja fátækustu og vanþróustu lönd í heimi eru fær um einhverskonar vörn.
í BNA eru alltaf ein herdeild á hverju svæði til að vernda og hjálpa ef einhvað kemur upp.
Vandinn er samt, jafnvel fátæk og vanþróuð lönd slátra Íslendingum í fjölda landsmanna. Ef einhver ætlar að ráðast á Ísland mun honum takast það nema við reddum okkur sprengjum, s.s. kjarnorku. Tekur því ekkert að fjölga skipum/þyrlum þegar 'óvinurinn' mun hvort sem er hafa að minnsta kosti 3 sinnum fleiri en það sem við getum mest fengið.

------
Betra seint en aldrei
það skiptir ekki máli, við erum í NATO. við þurfum bara einhvað til að verja okkur þangað til hjálp berst. svo munu fleirri skip og þyrlur bara gera gott fyrir þjóðina, aukið eftirlit með miðunum, og tala nú ekki um þyrlu-vesenið fyrir nokkru.
ísland mundi auðvitað aldrei standast full on war við einhverja þjóð með þróaðan eða fjölmikin her, auðvitað, en það þýðir ekki að við eigum ekki að vernda okkur, þó svo eina hlutverks varnaliðsins sé að sjá um flutninga, matar og skjóls aðstoð og læknis aðstoð í neyð... auðvitað myndi varnarlið ekki bara þjóna tilgangi sem svona aðstæður búa uppá, ég segi gerum einhvað öflugt batterí, sem sér um alla neyðar aðstoð og landhelgisgæslu. þú áttar þig á því að ef það yrði ráðist á Ísland á morgun, þá tekur ekkert kerfi við. ekkert sem aðstoðar fólk að flýja eða neitt... við mundum verða eins auðveld bráð og hundur í bandi, ekkert mál að stráfella okkur.
Ég hélt að BNA var hér bara út af staðsetningu landsins við Rússland. Njósnir um Rússland og fleira. Ásamt fangafluginu.
kaldastríðið var ástæðan fyrir því að þeir gerðu varnarsamning við ísland, þeir gerðu samningin til tja.. má segja framtíðar, svo núna þegar bna eru liggur við á kúbuni v. áróðsins í m-austur löndum, draga þeir hann til baka, að hluta til allavegna..

Bætt við 29. mars 2007 - 15:22
ohh... ég man ekki hvort þeir gerðu hann á meðan seinniheimssyrjöldini eða á kaldastríðs árunum eftir....

allavegna var ísland mjög mikilvægt fyrir bna á þessum árum til að fylgjast með skipa og kafbátaferðum á N-Atlantshafinu..

við erum það ekki lengur og okkur er kastað til hliðar :)
Vá hvað þetta var hræðileg grein. Ég hef aldrei lifað eins vel sem öryrki en þegar sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd og núna loksins var samþykkt að ég gæti unnið 25% án þess að það myndi skerða örorkuna mína að neinu leiti. Það væri gaman að sjá aðra gera þetta.

Varðandi mengun: Ég hef búið nálægt álverinu og það er engin mengun af þessu. Þetta er bara hræðsluáróður því í gamla daga voru kerin opin og því hættuleg. Núna er gufan sem þið sjáið koma upp, VATNSGUFA. Jújú það losnar SO2 í loftið en það verður samt heilbrigðara að hafa barnið sitt úti í vagni í Hafnarfirðinum heldur en í kringum umferðagötum Reykjavíkur.

Ég er sammála einum ræðumanni hérna; þeir sem vita ekki hvað fátækt er, skilja ekki nauðsyn peninganna. Núna get ég loksins sem öryrki leigt mér íbúð og átt peninga á mili handanna. Ég fæ meira en lágmarkslaun (sem betur fer því lækniskostnaður er mjög mikill hjá mér) og því kvarta ég ekki og kýs óhindrað Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum.

P.S. Nafnaköll eins og þú sagðir um Geir eiga frekar heima í leikskóla en hérna.
Það er ekki sama hver er öryrki. Jón eða Gunna. Ég þekki kanski ekki bókstaflega fátækt en ég er nálagt því að þekkja báðar hliðar málsins mjög vel.
ertu að segja að öryrkjar sitji ekki við sama borð. Ég vil fá dæmi takk fyrir.
Þarf þess í raun ekki , þetta er augljóst. Ef þú sinnir merkri menta eða valdastöðu eru miklu meiri líkur á að þú fáir allt vandræðalaust til þín. En eins og ég hef áður sagt munu sannanir á ýmsum vanköntum í dómskerfinu koma innan síðar.
Víst þarftu þess. Það er grundvöllurinn fyrir því að fólk taki þig alvarlega.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.


Tilvitnun:
Varðandi mengun: Ég hef búið nálægt álverinu og það er engin mengun af þessu. Þetta er bara hræðsluáróður því í gamla daga voru kerin opin og því hættuleg. Núna er gufan sem þið sjáið koma upp, VATNSGUFA. Jújú það losnar SO2 í loftið en það verður samt heilbrigðara að hafa barnið sitt úti í vagni í Hafnarfirðinum heldur en í kringum umferðagötum Reykjavíkur


ég veit ekki með álverið í straumsvík, en ég bý rétt hja grundartanga, hefuru séð mengunina þar!!! hún er nú bara all svakaleg, mar heldur stundum að þetta hafi bara einfaldlega sprungið, sést best á svölum sumarnóttum, eyðleggur heldur betur fyrir manni besta tíma ársins.
Kærastinn minn er að vinna þarna, og þetta er nú ekki hættulausasti vinnustaðurinn, alltaf einhver að slasast, og núna um helgina var vinnu félagi hans að missa fótinn, ekki beint drauma djobb íslendinga.
Má ég þá spurja þig, hvaða flokk viltu þá að menn kjósi ?

------
hæbb
Allavega ekki framsókn og helst ekki Sjálfstæðisflokk.
EItthvað segir mér að þú hafir ekkert kynnt þér stefnumál flokkana.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Ég er nú skráður í stjórnmálaflokk. Ættla ekki að segja þér hver það er...
Efast um að ég myndi hafa heyrt um hann hvorteðer.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Þú minnir mig á Bobby Fischer, þetta er eitt stórt samsæri.. allt saman!

------
will u do the fandango
Það er merkilegt hvað ég hef oft rétt fyrir mér í þeim efnum.
Það segir hann líka.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Viðeigandi tiltill á illa skrifaðri grein.

Þið hin, í guðanna bænum ekki taka VG trúanlega þegar þeir lofa gulli og grænum skógum. Þeir geta reddað grænu skógunum jú, en gullinu munu þeir aldrei ná að redda því þeir ætla sér að stöðva þann hagvöxt sem Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að vinna að að koma af stað á seinustuárum(með skattalækkunum og fleiri aðgerðum.) Hinir fátækari hafa aldrei haft meiri kaupmátt en nú, og góðærið hefur aldrei verið meira.

Sjálfur ætla ég að kjósa Sjálfstæðisflokkinn því hann hefur unnið mjög gott starf og aukið á lífsgæði mín svakalega með þeim aðferðum sem þeir nota til að gera hlutina svo að ég finn meira að segja efnislegan mun.

Ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið, en ekki láta hræra í hausnum á ykkur því það er svo gaman að breyta. Það yrði breyting til hins verra.
Það sem þeir ættla að stöðva sem þið vel efnaða fólk getið ekki skilið er að minka þessa öfgafullu misskiptingu í landinu. Hagvöxturinn mun kanski minka í tíð annarar ríkistjórnar, en hann mun ekki hverfa. Þið ríku og mjög vel efnuðu munuð hafa aðeins minna milli handana. Þetta er bara frekja í ykkur og ekkert annað.
já þetta grunaði mig , að þú ert eitthvað ómerkilegt kommakvikindi sem heldur að allir séu svo misskiptir og eitthvað þannig rugl!! villtu hafa alla nákvæmlega jafna? er það það sem þu villt það er nú frekar öfgafullt að minumati

------
hæbb
Akkurat þetta sem ég vildi fá fram. Sýnir augljósa heimskuna. Við skulum rifja upp hvað kommunismi þýðir.

Ef þú ert kommonisti, þá villtu að ríkið eigi öll fyrirtæki og stofnanir í landinu og þú villt að allir hafi sömu launin. Ég er mjög, mjög langt frá þessari stefnu. Þetta bara sýnir frekar að þú ert mjög nálagt því að vera öfga hægri maður. Við erum komin svo langt frá miðjunni að það er ekki findið. Það eins sem okkur vantar til að vera í algeri andstöðu við komonisma er að veikja þyrfti heilbrigðiskerfið og einkavæða nokkur fyrirtæki í viðbot
Gaur...Horfðu á skólakerfið og Menntakerfið, síðan á heilbrigðiskerfið og örkorku- og atvinnuleysisbæturnar...Á hverju byggiru það að við séum kominn hættulega langt frá miðjuni?

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Ef þú værir sannur kommúnismi þá mundirru líklegast baula á kapítalismann sem fylgt hefur valdatíð XD og já kommunismi þýðir ekki bara að að ríkisvæða allt heldur þýðir það að undirstéttin geri byltingu ofbeldisfulla :D

Eigum við að koma í kommunistaleik ?

------
gosh, júrsössjahippókridd...
Að þú skulir halda að ég sé vel efnaður maður er skýr vísbending um að þú veist ekkert hvað þú ert að tala um.

Hagvöxtur er ekki bara fyrir hina ríku, heldur líka hina fátæku. Þú ert bara að benda fingrinum og ásaka hægrimenn um frekju og græðgi, enda það er það eina sem þið jafnaðarmenn getið. Rannsóknir sýna að kaupmáttur hinna fátæku hefur hækkað um ég man ekki hve mörg prósent, þannig að það má segja að græðgin sé ykkar megin því þið áfellist það fjármagn sem vel efnað fólk á, jafnvel þó að það fólk sem er ekki eins efnað hafi meiri peninga milli handanna en áður.

Endilega takið peningana af þeim vel efnuðu, sjáið hvað gerist. Ríkissjóðurinn fær lægri skattgreiðslur í ríkiskassann(stærstur hluti skattgreiðslna í ríkissjóð er að sjálfssögðu frá þeim vel efnuðu), sem kemur beint niður á almenningi. Já, líka fátækum og öryrkjum.

Fólk verður að skilja að hægri hugsjón ríkir ekki hér útaf öllum milljónamæringunum eins og þú virðist halda, heldur eru milljónamæringarnir til útaf því að hægri hugsjón ríkir.
Tannhirða barna hefur hækkað allveg rosalega mikið. Ekki gleyma því að verðbólgan bitnar mest á lægst launaða fólkinu... Eins og hækkun personuafsláttar gagnast því mest. Hagvöxtur gagnast lægst launaða fólkinu minst. Hagvögsturinn kemur aðalega að gagni þar til að afla fleirum vinnu í landinu. Núna eru það útlendingar sem eru að hirða alla þessa vinnu, þannig að þetta gagnast þeim lægst launuðu ekkert...

Bætt við 24. mars 2007 - 14:49
Það fer eftir því hvernig þú gerir þetta. Málið er að íslendingar eru að nota allan sinn pening í að fjárfesta erlendis. Með því að hækka tolla á dýrar vörur ertu að neiða ríka fólkið til að borga meira og þannig mun það ekkert geta gert nema að flitja úr landi... sem ég er ekki að fara að sjá gerast.
Að hækka dýra tolla með það að markmiði að ná af ríku fólki peningum væri heimskulegt. Heimskulegt af því að þú ert ekkert bara að gera efnuðu fólki grikk, líka þeim minna efnuðu þar sem þú ert að gera þeim mun erfiðara fyrir að kaupa sér dýra hluti. Þetta minnir á eitthvað ævintýri, ekki satt? Stela frá þeim ríku og gefa þeim fátæku? Gengur ekki upp.

Þó að efnaða fólkið flytji kannski ekki sjálft úr landi, þá getur það vel flutt fjármál fyrirtækja sinna útí heim á hagstæðari kjör, og ríkissjóðurinn okkar myndi fá 0kr. í kassann í staðinn. Þú talar um að hagvöxtur gagnist þeim fátæku ekki neitt, en það er bara þvert á það sem hann hefur gert. Með hækkandi innkomu í ríkissjóð og lægri útgjöldum vegna einkavæðingarstefnu myndast svigrúm til að styðja betur við þurfandi.

Þetta er spurning um að vera ekki fastur í hringavitleysu sosíalismans, heldur að skapa aðstæður þar sem hinir fátæku geta efnast upp á eigin spýtur, án styrkja frá hinu opinbera. Þannig vinnurðu á vandanum, ekki með því að viðhalda honum.
Það er verkaskiptingin sem er afla þessa peninga. Það þarf að rústa skipulaginu og skapa mikið atvinnuleisi til þess að hlutirnir fari að versna. Á íslandi er bara meiri en nóg atvinnu að finna og svo er verið að fela atvinnuleysi í öryrkjum vegna þess að tekjutengingar eru að hindra þá sem eru allveg háðir bótunum í að geta tekið sénsin og farið út á vinnumarkaðinn. Hversvegna helduru að það sé svona mikil vinstri sveifla??? Það er orðið svo mikið af öryrkjum í landinu. Ef þú verður 100% öryrki þá er nánast vönlaust eins og staðan er núna að sleppa út úr því.
Það eru góðar ástæður fyrir vinstri sveiflunni. Það er allt að fara til anskotans fyrir verra efnaða fólkið í landinu vegna verðbólgu.
Veistu, þú ert búinn að endurtaka þetta stöðugt og byggir nánast alla andstöðu þína á þessu en þú hefir ekki bent á einn einasta hlut sem segir að ástandið sé að versna fyrir þá efnisminni.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Hvað ertu að tala um að vel efnað fólk hafi meiri pening en áður... AUÐVITAÐ HEFUR ÞAÐ MEIRI PENING!!! Við bjuggum í moldarkofum áður en tæknibyltingin hóf göngu sína á Íslandi. Með öllum tækniframförunum kemur mesti hagvöxturinn í heiminum. TÆKNIFRAMFARINAR ERU MIKILVÆGASTA FORSENDA HAGVAXTAR!

Bætt við 24. mars 2007 - 15:20
Heimurinn er allur í miklum vexti... Ég meina í Kína er núna í gangi eitt mesta hagvaxtarskeið sögunnar. Helsta vandamálið sem allir eru að glíma við er mengunin sem gæti snúið þessari þroun við...
Einhver búinn að horfa of oft á V for Vendetta?

Ég sé fátt trúverðugt og ekkert sem þú getur bakkað upp, frekar en í fyrri greinum þínum. Allt efnislegt sem ég hef að segja hefur verið sagt af öðrum þannig ég læt nægja að undirstrika það.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Ég get bakkað upp ýmislegt í fyrri greinum mínum. Það tekur bara svo langan tíma að það bíður betri tíma.
og þangað til þú gerir það þá mun ég benda og hlæja.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Heimurinn er fullkominn staður og Sjálstæðisflokkurinn er fullkomnasti stjórnmálaflokkur í heiminum og ekkert er að...
Heimurinn er ekki fullkominn nei, en það að segja að annar endi öfganna sé vitlaus sannar ekki að hinn endi öfganna sé réttur. Það er rökvilla.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Heimurinn er ágætur. Sjálfstæðisflokkurinn er langt frá því að vera fullkominn og það er heilmargt að í þessu samfélagi okkar sem þarf að laga - og ég hef trú á að verði lagað :)

Ég sé hins vegar engann flokk vera að koma með einhverjar betri hugmyndir svona heilt yfir. Það eru þá helst kannski VG með umhverfismálin - en ég er reyndar langt í frá sammála þeim öllum og ekki er það eina málið sem þarf að taka tillit til við stjórnun landsins - reyndar er það, að mínu viti, það minnsta sem þarf að taka tillit til.

------
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001
Bæði þingmenn Samfylkingar og Vinsti grænna hafa sagt á þingi að það sé BEIN tenging á milli glæpa og fátæktar. Hlutfall fanga pr. 1000 manns á Íslandi hefur lækkað undanfarin 10 ár. Samkvæmt kenningum SF og VG þá þýðir það að fátækt hlýtur einning að vera minni.

Á stefnuskrá VG er eitt helsta viðfangsefnið þeirra JAFNRÉTTI en svo er næsti dálkur KVENFRELSI. Hvar er karlfrelsið í öllu þessu "jafnrétti"? Við erum orðin ein ríkasta þjóð heims með einungis 300 þúsund íbúa í miðju Norður-Atlantshafinu og ættla VG að bæta um betur?
Hverning ættla VG að bæta kjör landsbyggðarfólks öðruvísi? Ísland er það land í Evrópu sem fær næst fæsta ferðamenn, við getum ENGAN veginn lagt traust okkar á einungis ferðamenn. Ég hef engan áhuga á að búa á "the new Costa Del Sol" við viljum vera ferðamennirnir en ekki þjónusta þá.

Samfylkingin hefur ekki hugmynd í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, þetta er flokkur sem hefur litlar skoðanir og eltast bara við það sem er í tísku hjá almenning.
"Ó viljiði ekki að við hækkum í launum, þá skulum við vera á móti því þrátt fyrir að hafa samþykkt það"
"Ó viljiði ekki Kárahnjúkavirkun, þá skulum við vera á móti því þrátt fyrir að hafa samþykkt það".
Samfylkingin í Hafnarfirði ættlar greinilega ekki að "brenna" sig á þessu og ákveður að taka enga afstöðu. FRÁBÆRT stjórnmálaafl þarna á ferðinni. Afl með engar skoðanir.

Fyrir mitt leiti er einungis Sjálfstæðisflokkurinn sem kemur til greina hjá mér í stjórn. Þetta er flokkur sem hefur GRÍÐARLEGA reynslu á að stjórna landinu. Ég hef það frábært í dag og ég er enginn milljónamæringur. Þetta útópíska draumasamfélag sem VG sjá fyrir sér er ekki hægt. Enda LOFA þeir engu í sinni stefnuskrá. Þau segast einungis VILJA gera eitthvað. Ég vil vinna í Lottó, er það nóg?

------
Skiluru!!!
Það er fullt af fólki sem býr útá landi og finnst ekkert betra og örugglega fullt af fólki sam langar að gera það. Þið sem hugsið sem Sjálfstæðismenn eruð ekki eina fólkið í landinu. Fullt af fólki sem myndi líka það vel að búa úti á landi og það sérstaklega á sumrin, þegar það er svo gott veður. Á veturna væri svo tíminn til að fara til útlanda.
?

------
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001
verð því miður að segja, að ég held að ástæðan fyrir því að það séu svona fáir fangar er sú að menn fara sífellt í gæsluvarðahald, enn ekki fangelsi. dómarnir á íslandi eru fáránlega lágir, einhver gamall kall fékk 1 og hálft ár fyrir að misnota barnabarn sitt.

------
Addi Copperfield, Certified testacle inspector.
Það má bæta því við að til þess að allir í landinu geti haft það gott þyrfti ekki nema að taka 1-2% af því fóki sem er mjög vel efnað og ríkt. Þetta allveg jaðrar við heimsendi hjá sumum.
Heimildir plz.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Þú vilt sem sagt að þeir sem hafa unnið sig upp í það að hafa það gott - jafnvel mjög gott - eigi ekki bara að borga meira til samfélagsins, heldur *miklu* meira?

Við skulum ekki gleyma því að þeir sem hafa meira á milli handanna eru nú þegar að borga meiri skatta en við hin - þar sem skattur er einfaldlega hlutfall af tekjum - auk þess sem þeir eyða líka meira og borga því meiri virðisaukaskatt en við hin.

Það sem eykur hagvöxtinn að mínu viti, er að lækka frekar tekjuskatta, t.d. niður í kannski 20% eða svo. Það þýðir betri innheimtur, meira neysla hjá öllum og í heildina meiri innkoma í ríkiskassann.

En allavega - hvað sem þið gerið - ekki kjósa Samfylkinguna :) Allt annað en hana (já, jafnvel frekar VG).

------
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001
Við þetta má bæta að landið mun alltaf vera hérna. Ef í harðbakkan slær er ekkert mál að redda hagvextinum upp aftur... ég meina hversu miklu er hægt að klúðra á 4 árum???
*bendir á þýskaland milli árana 1941-1945

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Ég get allveg sagt þér að ef það verður einhvað valdarán og keisaramyndun á Íslandi að þá mun hún ekki lengi vara yfir. Íslendingar eru tregir til mótmæla... Þegar það gerist hinsvegar, þá verður það svakalegt.
LOL :D

Þú vilt sem sagt leyfa vinstri stjórn að spreyta sig, vegna þess að hægri öflin munu alltaf vera tilbúin á hliðarlínunni til að hreinsa upp eftir þau?

Er þá ekki bara betra að hafa hægri stjórn áfram, svo það þurfi ekki að hreinsa upp eftir neinn?

------
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001
Ég er nú bara að hvetja fólk til að taka sénsin. Sjálfur veit ég landið mun verð moldríkt ef við leifum vinstri-stjórn. Hún hentar einfaldlega svo vel á Íslandi og töluvert betur heldur en hægri stjórn.

Í landi sem hefur nóg af auðlindum hentar betur að hafa vinstri ríkistjórn.

Svo má ekki gleyma að borgarlífið er mun erfiðara en sveitalífið ef þú ert fátækur. Peningar borga ekki bara mat heldur geta þeir líka... æjjj fólki leiðist bara svo mikið. Þú getur ekki dáið úr leiðindum en það gæti verið betra að deyja þá... Þetta veldur allt saman leti , slæmu mataræði , sem skilar sér í slæmum afköstum í vinnu.
ÞARNA HAFÐI ÉG ÞAÐ! Mjög stór hluti af peningunum á Íslandi sem eru fengnir í gróða af fyrirtækjum eru fluttir erlendis í tonnavís. Já kæru landar... ég var að uppgvöta eitt mesta rán Íslandssögunnar. Bankarnir og önnur fyrirtæki féflétta þjóðina og flytja svo peningana úr landi...!!!
ALLIR AÐ KJÓSA VINSTRI STJÓRN!!! VIÐ VERÐUM MOLD RÍK!!!
Það er alger misskilningur að Geir Haarde sé snobbaður. Þá þekkir þú hann greinilega ekkert.Hann er einn sá minnst snobbaði í stjórnmálum.
Það er í raun þetta sem er vandamál Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru þeir einu sem búa á Íslandi. Þetta gerist vegna þess að þetta er stærsti tjórnmálaflokkur á landinu. En í raun er bara 30% af landiu sem styður þá ef allir 18 ára og eldri sem kjósa ekki eru teknir með.
Komu ekki einmitt ferðamenn til landsins til að mótmæla Kárahnjúkum?!
Þeim ábyggilega fjölgaði þá :D
Hér sjást tölur úr Viðskiptablaðinu sem þýðir fjölgun víst :O

Ef engin vopn væru til þá hefði ekki 1. og 2. Heimstyrjöldin hafist með
eins miklum látum. Með vopnum verða glæpir auðveldari og miskunarlausari.
Nei fyrirgefið, ég biðs innilegrar afsökunar.
Þetta er málið í dag; verndum okkur með vopnum og skjótum óvininn
ÁÐUR en hann drepur okkur, líkt og aðrar þjóðir hafa gert.
Óvinur 1
Óvinur 2
Óvinur 3
Óvinur 4
Hirosima Sem betur fer búið að eyða óvini

Með horfum úr fortíðinni, sögu Jarðar, hefur þá ekki ALLTAF verið tímabil
þar sem Jörðin kólnar í nokkur hundruð/þúsund ár og hitnar jafnoft.
Ég er enginn jarðfræðingur en ef Norðurpóllinn bráðnar þá getur hann
farið í Golfstrauminn og kælt hann, þar með kólnar á Íslandi og allt verður kalt aftur.

Við gætum því kannski öll mótmælt Jörðinni sem kúlu og heimtað að fá hana
flata og haft réttan halla svo sólin skini á allt. Þá verður allstaðar jafnheitt.
En kanski var óvinurinn ekki eins mikill óvinur og við héldum svo við sprengdum hann í loft upp... Þá kemur hann seinna og gerir árás á okkur þegar við erum óviðbúinn....
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar