Það er fullt af fólki að halda því fram að skjálfti verði haldinn í lok janúar, lok febrúar, byrjun mars osfrv.

Svo það komist ALVEG á hreint:

Það er engin dagsetning komin á Skjálfta, hvorki grófleg né fínleg!

Fyrir þá sem skilja ekki hvað þetta þýðir, þá þýðir þetta að Skjálfti gæti allt eins verið haldinn í ágústmánuðí.

Ef það er orð á götunni um dagsetninguna á Skjálfta, þá á það ekki við NEIN rök að styðjast.
Það skiptir engu hverja þið þekkið eða hverjir þeir þekkja sem þið þekkið… dagsetningar á Skjálfta eru kjaftæði ÞANGAÐ TIL hún birtist hér á Huga.

Þannig að hættið að velta þessu fyrir ykkur, bíðið bara eftir tilkynningu hér á Huga.
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur.