Ljóð - 7. febrúar 2012 - 23:41
Töfrandi máninn, hann tælir tárvotan fuglinn til sín Hræddur, við hugsanir gælir er hamingjan andvana dvín Máninn í mjöllinni sefur mæddur, því þögnin er löng Saknar, því sólskríkjan hefur sungið sinn síðasta söng
Smásögur - 2. febrúar 2012 - 17:08
Sælir rithöfundar og annað áhugafólk um smásögur. Okkur bárust þrjár sögur í jólasögukeppninni. Kannski ekki stór tala, en gæðin voru afar fín og því keppnin að okkar mati vel heppnuð í alla staði. Við Vefstjóri höfum dæmt sögurnar og hér er...
Ljóð - 3. janúar 2012 - 15:32
Þetta byrjaði allt vel, eins g flest sem endar illa Ég var í landi að mygla og þú úti að sigla Við gengum í gegnum sætt og súrt Og allan sólarhringinn var talað og kúrt Mér þótti svo vænt um þig Og þú sagðir þú elskaðir mig En það er ekkert...
Ljóð - 30. desember 2011 - 18:13
Ég þekki brjálaðan bílstjóra Stundum ansi þreytt undri stýrir reynir að tóra sem keyrir samt ekki eftir 4 bjóra Jafnvel þó hún ætli að hitta Dóra Hún öskrar sig í umferðinni hása Löggan taldi sig þurfa láta hana blása hún afsakaði sig og hóf...
Ljóð - 29. desember 2011 - 22:11
Elsku litla stelpan mín sem komst alltof snemma Í þennann heim, þú sem áttir að heita Emma Það er sama nafn og fyrsta dúkkan mín bar Ég ráfa um í myrkri en þú ert ekki þar Ég heyri barnagrátinn þinn óma í hausnum stanslaust Kaust ekki þetta...
Ljóð - 25. desember 2011 - 19:35
Sef hjá því mér leiðist þeir svíkja mig, ég reiðist þegar þeir hringja ekki ég vil þá bara pínu stund smá vil fá að vita hvað sé að frétta gerði ég ekki allt það rétta Svo hitti ég þennann flotta gaur hann er svo fyndinn samt staur hann...
Smásögur - 24. desember 2011 - 23:31
Ég hrökk upp. Óróleiki hríslaðist um mig svo ég stóð upp í næturmyrkinu. Ég lokaði augunum og gekk blindandi fram á gang. Þar opnaði ég augun og marglitað ljósið frá jólaseríunum lýstu mér veginn inn í eldhús. Lítil stelpa tiplandi á tánum á...
Smásögur - 24. desember 2011 - 15:11
Ég gekk inn í herbergið hennar Lóu. Það brakaði í hjörunum. Herbergið var alveg eins og hún hafði skilið við það. Eini munurinn var rykið og nokkrir jólaenglar sem mamma hafði sett í hillurnar. Þótt liðnir væru meira en tveir mánuðir síðan slysið...
Smásögur - 24. desember 2011 - 08:00
Rauð, gul, brún og svört laufblöð dönsuðu um í haustsólinni. Vindurinn lamdi og sló gangandi vegfarendur með harðri hendi. Kvaldi og píndi alla þá sem dirfðust að fara út úr húsi. Gamall maður og lítil stúlka með gyllta lokka voru ein af þeim sem...
Ljóð - 23. desember 2011 - 11:16
Just remember desember isn't fair thou some share that they don't care on most it snows and rains u can tell from there vains Families are not the same Victims of systems game And thousands hands who work for brands Fallowing demands and...
Smásögur - 23. desember 2011 - 01:35
„Glóandi í gluggunum, glöð ljósin víkja burtu skuggunum. Allir gott nú gjöri, en gleymi sút og sorg. “ Það er erfitt að vera lítil. Og bíða. Desember líður svo afskaplega hægt þegar maður er bara “ðekkðð” ára (6 ára). Tíminn...
Smásögur - 20. desember 2011 - 18:26
Ég veit ekki við hvern ég er að tala, ég veit að ég er ekki að tala við mig sjálfa. Ég verð að vera að tala við einhvern. Ég verð að fá svör. Ég get engu svarað. * Í fullkomri, óþægilegri einlægni veit ég hálfpartinn ekki um hvað ég er að...
Ljóð - 13. desember 2011 - 10:03
Andartaks skortur á umburðarlyndi getur kostað ævilanga eftirsjá því þetta erfið mál er erfitt að útkljá Að geta þagað er ágæt íþrótt að gera svona er of ljótt Á misjöfnu þrífast börnin best. Það sér maður fyrir rest Bæ má af barni þekkja...
Ljóð - 11. desember 2011 - 10:58
Jæja, þá eru nokkrir klukkutímar í próf, og fátt betur viðeigandi en að yrkja dálítinn prófasálm í tilefni af því. Til að reyna ekki of mikið á heilann fékk ég þó hugmynd og form að láni frá þessu snilldarjólalagi hér, sem gaman er að syngja kvæðið...
Ljóð - 10. desember 2011 - 13:08
MAGNÚS POEMS© Í SAMSTARFI VIÐ SKÁLDSKAPARGYÐGUNA HF© KYNNA MEÐ STOLTI: STÆRSTA LJÓÐAVIÐBURÐ SÖGUNNAR KVÆÐIÐ SEM FARIÐ HEFUR SIGURFÖR UM HEIMINN OG NÚ Í FYRSTA SINN Á ÍSLENSKU! „ÞIÐ HÉLDUÐ AÐ HANN VÆRI BÚINN AÐ VERA EN HANN HEFUR ENGU...
Ljóð - 6. desember 2011 - 16:06Sveimandi horfa leika sér Svífandi sindrandi ljósglit í dvínandi birtu er glóð í hjarta nærveru og hlýju. Yndi svífandi orða vafra hér. Sveimandi horfa leika sér. Logn í seiðandi húsi snjór við furu fót. Bjartar stjörnur á himni börn...
Ljóð - 1. desember 2011 - 00:19
Fönnin hvíta fellur yfir frosna jörðu Vindar vetrar tréin börðu Visin standa í frosti hörðu Mánaskin á mjöll í myrkri hugann kætir Fannhvít fegurð tungu vætir Fennir að, í snjóinn bætir Vælir stormur, valdamiklar vindsins hviður konungs...
Ljóð - 27. nóvember 2011 - 15:56
Ég elska fiðringinn sem fer um líkama minn, þegar náttsvart myrkrið sveipar mig leyndarhjúp og sveittir draumar rispa grundvöll tilveru minnar. Á meðan þögull máninn gægist inn, á nakinn líkama þinn.
Ljóð - 21. nóvember 2011 - 15:49
Frostið bítur hart Er kaldir vindar gnauða sólin hæðir mig Myrkur herjar stríð við himins heri stjarna djúpt í hjartans vá Undir mánans sigð í snæviþöktum sölum hjarta tælir hug
Ljóð - 21. nóvember 2011 - 15:01
Í kvöldroðans aftanskini er logar hver krókur og kimi af gullinni glóð, er blikar sem blóð, bærist vindur í laufgrænu limi. Út um firði og flóa, yfir valllendi og móa, hvíslar aftan blær, kaldur sem sær, það er aftur farið að snjóa. Í...
Bækur - 18. nóvember 2011 - 21:21Fyrir nokkrum vikum hafði ég ekkert lesið eftir Braga Ólafsson en síðan þá er ég búin með tvær af skáldsögum hans: Samkvæmisleiki og Sendiherrann. Ýmislegt eiga þessar tvær bækur sameiginlegt annað en höfundinn. Báðar fjalla þær um karlmenn sem...
Smásögur - 10. nóvember 2011 - 17:45
Fyrir 20 árum síðan lá ég hér í þessu rúmmi sem ég sit við nú. Ég var 17 ára gamall,með gleraugu og nýsprengda fílapensla víðsvegar um andlitið, ég var rauðhærður en var búinn að lita hárið á mér svart, aðallega vegna þess að ég var svo mikill Cure...
Ljóð - 10. nóvember 2011 - 07:26
Var að vinna verkefni fyrir áfanga sem fól það í sér að sitja einn AA fund. Ég dreif mig því á fund þar sem það þurfti víst bráðum að fara að skila verkefninu. Áður en ég sofnaði þá lenti ég í krísu, því mér fannst ég þufa'ð skrifana þessa hérna...
Smásögur - 9. nóvember 2011 - 18:07
“The best thing one can do when it's raining is to let it rain.” - Henry Wadsworth Longfellow Það var hætt að rigna. Loksins. Ég opna augun. Skyndilega. Með erfiðismunum. Blikkaði einum of oft. Stírunar byrgja mér sýn. Ég nudda augun. Með...
Ljóð - 6. nóvember 2011 - 23:09
Í angist minni leynast ótal þræðir, gerðir úr efni sem hjarta mitt hræðir. Eins og gullin glóð svo fögur og fín, birtist mér ógurleg myrkrasýn. Ég augunum loka, vil ekkert sjá, hver um dimma nótt skríður á stjá. Í angist...

