1.) Vinsamlegast sleppið því að senda inn þræði sem ekki varða
áhugamálið sjálft. Chuck Norris, Ali G, Batman og nýjustu fréttir
af fræga fólkinu eru meðal þeirra hluta sem þið eigið ekki að vera
að ræða um á áhugamálinu.
2.) Ekki senda inn tengla á myndbönd á Almennar umræður. Setjið þá
á myndbandakorkinn. Ef þið vitið um
fleiri en eitt myndband, ekki senda inn marga þræði um það, einn
þráður er nóg. Ekki senda inn fleiri en tvo þræði á dag, geymið
frekar tengla á ný myndbönd og sendið þá inn daginn eftir.
3.) Umræður um einkaþjóna (e. private servers), hvernig á að sækja
þá, setja þá upp, tengjast þeim, hvort einhver geti hjálpað sér að
setja slíkan einkaþjón upp o.s.frv, eru bannaðar! Brot á
þessari reglu leiðir til banns.
4.) Við vitum hversu gleðilegt efni það er að komast á 1-80, eða
fá fyrsta epic itemið, eða að vinna heimsmeistarann í StarCraft. Þó
að það sé fagnaðarefni að sjá menn koma úr eyðimörk raunveruleikans
og aftur á spjallborð huga er það óþarfi að gera heilu og hálfu
korkana um það, Jafnvel þó að það sé sorglegt að sjá spilara hverfa
út í hið óendanlega tóm raunveruleikans er í lagi að halda því bara
fyrir sjálfan sig og vini sína.
Vinsamlegast haldið þessi út af fyrir ykkur og þá sem spila með
ykkur. [b]EKKI skrifa um það á korkunum[/b].
5.) VINSAMLEGAST HALDIÐ FRIÐINN. Þeir sem ekki geta gert það eru
taldir vanhæfir til almennra samskipta og fá yfirleitt fljótt að
fjúka af Huga. Við vitum að það getur allt gerst í hita leiksins,
en áður en þið sendið inn heiftarlegar rifrildisþræði skulið þið
draga andann djúpt, telja upp á tíu og finna svo aðra kurteisari
leið til þess að koma máli ykkar á framfæri.
6.) Notið rétta korkaflokka. Spurningar eiga að berast í
spurningaflokkinn, myndbönd í myndbandaflokkinn o.s.frv.
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða efasemdir um reglur
áhugamálsins eða það sem fer hér fram bendi ég ykkur á að listi
yfir okkur stjórnendur má finna til hliðar og þaðan eru skilaboð
til okkar í aðeins tveggja músasmella fjarlægð.