Bilar Fyrst notandinn Trabant minntist á sérsmíðaða Ferrari er um að gera að senda inn mynd af hugsanlega fallegasta skutbíl í heimi; Ferrari 456 GT Venice. Pininfarina hefur víst smíðað einhverjar mismunandi útgáfur af 456 GT. Til dæmis hefur því verið fleygt að Soldáninn af Brunei eigi bæði skutbíla líka þessum og fjögura dyra stallbaka. Þessi mynd var tekin af http://www.ferrariownersclub.co.uk/happenings/2003/january/shooting%20brakes/text%20.asp. Þó ég elski svona skutbílsbreytingar á sportbílum eru hinir bílarnir sem má sjá á síðunni ekki alveg í þessum klassa. Eru meira einhvers staðar á milli AMC Gremlin og Reliant Scimitar í útliti…