Bilar MMC hefur nú kynnt nýja litasamsetningu á WRC rallíbílum sínum fyrir næsta tímabil. Breytingin er ekki stór því að þar sem áður var hvítur litur en nú komið ljósgrár litur. Ástæðan að baki breytingunum er sú að Marlboro hefur ákveðið að styrkja frekar Peugeot á næsta ári. Stóru fréttirnar frá rallíarmi MMC eru hinsvegar þær að þeir eru alvarlega að íhuga að hætta að nota Lancerinn í WRC rallseríunni og mæta í staðinn á nýja Coltinum sem var kynntur um daginn. Þetta myndi þó ekki gerast fyrr en í fyrsta lagi árið 2004.