Bilar Nýr og endurbættur Toyota Avensis er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Bíllinn hefur verið tekinn í gegn bæði að innan og utan og á hönnun hans að falla sérstaklega að kröfum evrópumarkaðar þar sem Toyota hefur mikinn áhuga á að auka hlut sinn. Enda er bíllinn hannaður af ED2 hönnunardeild Toyota í Nice en Toyota gerir ráð fyrir að helstu keppinautar í Evrópu verði Opel Vectra, Ford Mondeo og Volkswagen Passat.