Er að andast úr lélegu úrvali á markaðnum og fáránlegu verðlagi á köflum.

Vantar rúmgóðan fjölskyldujeppling sem eyðir litlu sem er samt ódýr (2-3 mills) og bilar ekki annan hvern dag. Finnst ég sitja ein út í horni með KIA Sorento ('05-'06) í annarri og kleinu í hinni.

Er í lagi með þessa dollu (og veit að þetta er ekki lúxusjeppi með öllum gadget-um) eða detta ykkur í hug e-r aðrir bílar sem eru til á þessum skraufþurra markaði sem er einnig þekktur sem ‘notaðir bílar’?