Jebb…það var brotist inn í bílinn minn, hana Rauðku mína (Toyota Carina E) og geislaspilarinn tekinn. Ég vona að þjófurinn hafi verið ánægður þar sem takkar 4, 5 og 6 voru bilaðir *urrrr*

Allavega nægði þjófnum ekki að taka spilarann heldur var öll helv… innréttingin tekin með þ.e. fyrir ofan tækið. Og svo fæ ég þetta ekki bætt þar sem ég er ekki í kaskó.

En mig langaði til að athuga hvort einhver lægi á geislaspilara á lítinn pening svo ég fátækur námsmaðurinn gæti hlusta á tónlist í bílnum.

Kveðja,
IceCat