Hæ heyriði ég þarf eiginlega að kaupa mér fm sendi fyrir iPodana mína, annar þeirra er gamall iPod mini en hinn er er iPod nano.
Ég átti svona Belkin sendi en hann var bara ekki a virka nógu vel svo ég var helst að spá í sendi sem maður tengir við sígarettukveikjarann í bílnum, eru þeir að virka eitthvað vel? Ég var líka bara að spá í iTrip en ég las einhverstaðar að þessi nýju iTrip virki bara á nýjustu iPodana.
Hverju mælið þið með að ég ætti að kaupa og hvar fæst það? Ég er á Akureyri og þarf svona helst fyrir þriðjudaginn :)

Fyrirfram þakkir ;)