Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kexi
Kexi Notandi frá fornöld 34 ára karlmaður
1.122 stig
_________________________________________________

Innantómt innihald öskurs (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Fingur hennar snerta mig. Hóllinn er hærri en tímabilið sem ég átti aldrei. Þar sem við liggjum bæði. Augnablikið sem ég átti aldrei. Þó hún hafi átt það. Endurspeglun himinsappelsínunar sem er í þann mund að setjast niður er augljós í ljósa hárinu hennar. Ást hennar heillar mig svo mikið að ég elska ástina meira en hana sjálfa. Rollan horfir á hana elska mig og mig elska ástina hennar til mín. Efst á ýmindaða hólnum er ástin óbærileg í hug sautján ára drengs. Ég horfi á hana horfa á töfluna...

Áttu alla þættina? (0 álit)

í Gamanþættir fyrir 21 árum

Af völdum úrgangs (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Sundurtætt pappírsbréf eftir áttræðan rithöfund rúllar niður Laugarveginn. Ég sit þar. Með hendurnar vafðar utan um lærin. Ég sit þar. Með þurrkinn í munninum. Ég sit þar. Með fertugu konuna andaða við hægri hliðina. Ég sit þar. En… ég stend. Ég stend fastur á því að ég mun ekki falla og rúlla niður göturnar rétt eins og bréfið sem átti að fara til ömmu minnar. - Kexi

Telurðu ljóð þín vera góð? (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum

Uppþornuð augu (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Ég græt. Ég græt flóði innan við skinnið á mér. Ofvaxnir tómatar á bananahýðum við Bombai. Ég finn ullina strjúkast við dýnuna og tárin breyðast út á koddanum. Ég er tilfinningaríkur en þó ekki ríkur. Ég skil ekki hvernig mér líður. Því ég á mér uppþornuð augu sem vilja opna hlið af vatni. tIlFiNnInGaR… - Kexi

Súrrealískt (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Allt er ótrúlegt. Konan segir honum að halda sér burtu frá salerninu. Samt stendur hann enn fyrir utan… … bankið á hurðina verður smám saman eins og jarðskjálfti. Uppnöfn. Hóra, tussa. Allt er furðulegt. Hús í rúst. Rifinn sófi - stofa. Salerni úti í gráu horni. Hún finnur fyrir jarðskjálftanum að utan. Þó hún geti það ekki sjálf - finnur hún fyrir litlu stelpunni inni í sér æpa með manneskjuna sem veldur jarðskjálftanum INNI í sér fyrir tuttuguogfimm árum Sama upplifun. Allt er súrrealískt. - Kexi

Stundarðu þetta áhugamál reglulega? (0 álit)

í MMORPG fyrir 21 árum

Hvort er skemmtilegra? (0 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum

Kaupirðu Warhammer í Nexus? (0 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum

Hefurðu veitt lax? (0 álit)

í Veiði fyrir 21 árum

Áttu golfsett? (0 álit)

í Golf fyrir 21 árum

Pirrandi (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Síminn hringir. Bjallan hringir. Bílar keyra. Útvörp heyra. Skór ganga. Ljósakrónur hanga. Ég er borgarbarn. Ekkert er pirrandi. - Kexi

Sjón blinds manns (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Allt er svart. En hvað veit ég? Allt er hvítt. En hvað veit ég? Ég er ekki blindur. En hvað veit ég? - Kexi

Rauð ljós (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum
Það er eins og eldurinn sé í nánd. Á jólunum tíðkast sá siður, að bak við fólk og köld kliður… leynast rauð ljós. Úti er umferðarniður. - Kexi
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok